Gervigreind hjá Eyn
Gervigreind í rekstri
Við hjálpum fyrirtækjum að nýta gervigreind — frá fyrstu skrefum starfsfólks til sjálfvirknivæðingar ferla.
Ávinningur sem nýtist strax
Gervigreind býður upp á hraðari úrvinnslu, betri nýtingu upplýsinga og sjálfvirkni í ferlum sem áður tóku dýrmætan tíma.
Tæknin skilar þó litlu ein og sér. Árangurinn byggist á því að starfsfólk kunni að beita henni í sínum störfum og að lausnirnar séu sniðnar að raunverulegum þörfum rekstrarins.
-
Aukin framleiðni starfsfólks
Mesti og fljótasti ávinningurinn liggur oft í daglegum störfum — skrifum, skjalavinnslu, greiningu gagna, upplýsingaleit og undirbúningi funda og skýrslna. Með markvissri þjálfun lærir starfsfólkið að nota gervigreind af öryggi og hvenær ber að yfirfara niðurstöður og gæta að meðferð gagna.
-
Sjálfvirknivæðing í rekstri
Við greinum ferla þar sem sjálfvirkni skilar mestum ávinningi og smíðum lausnir sem tengjast kerfunum sem fyrir eru — hvort sem um er að ræða úrvinnslu skjala og fyrirspurna, aðstoðarmenn fyrir starfsfólk eða sjálfvirk vinnuflæði milli kerfa.
Hagnýt gervigreind fyrir starfsfólk
Fyrsta skrefið hjá flestum fyrirtækjum er grunnnámskeiðið okkar í notkun Claude, gervigreindar frá Anthropic sem leggur sérstaka áherslu á áreiðanleika og öryggi gagna í fyrirtækjarekstri.
Námskeiðið er um tveggja klukkustunda verkleg vinnustofa þar sem allir þátttakendur vinna á eigin tölvu og prófa jafnóðum það sem farið er yfir. Að námskeiði loknu kann starfsfólkið að beita gervigreind í eigin verkefnum strax næsta dag.
- Grunnatriðin: hvað gervigreind getur — og hvað ber að varast
- Skrif, yfirlestur, samantektir og þýðingar
- Vinna með skjöl: PDF, Word, Excel og myndir
- Að orða fyrirmæli þannig að niðurstaðan verði góð
- Verkefnasvæði fyrir endurtekin og sameiginleg verkefni
- Cowork: Þegar gervigreindin klárar heil verk sjálfstætt
- Örugg notkun og meðferð gagna á vinnustað
Námskeiðið er haldið á staðnum hjá fyrirtækjum eða í fundaraðstöðu að eigin vali og er sniðið að hverjum vinnustað. Æfingar og dæmi taka mið af raunverulegum verkefnum þátttakenda og boðið er upp á eftirfylgni þegar starfsfólkið fer að beita tækninni í sínum störfum.
Smíði gervigreindarlausna
Þegar grunnurinn er kominn tekur við að nýta gervigreindina í ferlum fyrirtækisins. Eyn greinir hvar sjálfvirkni skilar mestum ávinningi og smíðar sérsniðnar lausnir sem falla að þeirri kerfisumgjörð sem fyrir er.
- Claude frá Anthropic
- Fyrir krefjandi úrvinnslu texta og gagna: greiningu skjala, samantektir, aðstoðarmenn sem þekkja gögn fyrirtækisins og sjálfvirka úrvinnslu fyrirspurna.
- Microsoft Copilot Studio
- Fyrir fyrirtæki í Microsoft 365 umhverfinu: spjallmenni og sjálfvirk vinnuflæði sem tengjast Teams, SharePoint, Outlook og öðrum kerfum sem starfsfólkið notar nú þegar.
Af hverju Eyn?
Hjá Eyn starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu af hugbúnaðarlausnum, ferlagreiningu og kerfissamþættingum. Við nálgumst gervigreind eins og aðra tækni: hún á að skila mælanlegum ávinningi í rekstri og virka í raunverulegu umhverfi — ekki bara í kynningu.